GB '07: Fyrsta kvöld

Í kvöld fór fram fyrsta keppniskvöld í 1. umferð Gettu betur í ár. Það verður að segjast að keppniskvöldið var fremur leiðinlegt, ekki vegna spurninganna, sem voru fínar, heldur vegna slakrar frammistöðu skólanna, enda fæstir skólarnir sem kepptu í kvöld líklegir til afreka í ár.

Flensborg - ML
Þetta fór eins og maður bjóst við, Flensborg marði þetta. Þrátt fyrir auðveldar hraðaspurningar var staðan einungis 10-9 Flensborgurum í vil eftir þær, og endaði keppnin 15-12. Víxlspurningarnar voru erfiðari en hraðinn, og tóndæmin fremur þung, en þrátt fyrir það hefði ég viljað sjá miklu hærra stigaskor, vegna hraðaspurninganna. Einhvern tímann var maður vanur að sjá bæði Flensborg og Laugarvatn í sjónvarpinu á hverju ári, en undanfarið hefur þetta verið heldur dapurt. 

FS - FAS
Merkilegur leikur fyrir þær sakir að þetta eru liðin sem við MK-ingar unnum í útvarpinu 2004, á mínu fyrsta keppnisári. Minnist þessara skóla því alltaf með hlýhug, þá sérstaklega FS, sem við unnum 32-8 að mig minnir. En nú er öldin önnur og báðir skólar með endurnýjuð lið, en e-ð virðist þó vanta uppá því hvorugt liðið virkaði sannfærandi. Ég hefði fyrirfram búist við FAS-istum sterkari, en greinilegt er að endurnýjunin hefur ekki verið heppileg, enda kannski erfitt að fara framá annað í 100 manna skóla. FS tók þetta á endanum, og eru kannski á svipuðu róli og Flensborg, en þó engan veginn á sjónvarpsleveli. 

FL - FG
FG tók þetta nokkuð auðveldlega, sem kom svosem ekkert á óvart, þó ég hefði búist við Laugamönnum sterkari fyrirfram. Þeir voru hins vegar mjög slakir og fengu einungis 8 stig, sem er afleitt. FG er hins vegar með ágætis lið, a.m.k. það besta í kvöld, veit þó ekki með sjónvarpslevel...

Annað kvöld eru svo þrjár keppnir: 

MS - FSnæ
Býst við nokkuð öruggum sigri MS-inga í þessari keppni.

MÍ - IH
MÍ tekur þetta létt.

MK - FNV
Ég vil að sjálfsögðu veg GB-liðs MK sem mestan, enda þjálfari liðsins. Ég ætla þó ekkert að tala um mína lærisveina, þetta fer bara eins og þetta fer.


Bananar og hagfræði

Er að læra fyrir þjóðhagfræðiprófið í fyrramálið. Gengur bara ágætlega. Ekki flókið efni.

Hefur einhver pælt í því hversu mikla áhættu maður er að taka með því að bíta í banana? Ég a.m.k. fæ smá hroll þegar ég hugsa um að það gæti í raun hvað sem er verið þarna inní, eins og gömul lítil skordýr og alls konar þannig fjandi. Þetta er nú svosem ábyggilega vel yfirfarið áður en þetta er sett í verslanir, en áhættan er nú samt til staðar! Ég er vonandi ekki smeykur að ástæðulausu?


Amfetamínsterar...

…fyrir alvöru karlmenn.

Og svo þarf ég ekkert að sofa!!

Ég þarf að fara að sofa…


Vætturin?

Ég var að skoða Ísland í aldanna rás (1900-2000) áðan og rak augun í að þar er skrifað bjargvætturin, en ekki bjargvætturinn eins og ég hafði haldið að það ætti að vera. Fyrst hélt ég að þetta væri bara ritvilla sem prófarkalesurum hafði yfirsést. Nú er ég frekar góður í stafsetningu, og er sjaldan í vafa þegar kemur að einu N-i eða tveimur, en er vættur með greini með einu N-i eða tveimur?


Dimmitering

Já, þú gast rétt. Það var dimmitering í gær. Mjög gaman bara. Reyndar endaði þetta hundleiðinlega hjá mér, en dagurinn fær pottþétt fjórar stjörnur af fimm mögulegum, þrátt fyrir það.

Lítið annað að segja en að MK stóð sig vel í æfingakeppni í Gettu betur í dag. Vona að áframhald verði á góðu gengi.

Þá er ég bara búinn.
Boj.


Ornithology

Það styttist heldur betur í útskriftina hjá mér. Bara þrír skóladagar eftir og jafnmörg próf. Stúdentinn er innan seilingar… Hrikalega væri það samt gaman ef e-ð kæmi uppá og ég þyrfti að bíða fram á vor…

En rosalega var vel tekið á móti manni á Akureyri um helgina. Frítt að borða á Bautanum alla helgina, auk gistingar á góðu gistiheimili. Eini peningurinn sem ég eyddi var í bjór á laugardagskvöldinu…

Jæja, klára ritgerð.

Boj.


Búbbarnir...

…eru alveg hrikalega slæmir þættir. Mörgum áratugum á eftir sinni samtíð.

Annars er ég bara góður sko, styttist í útskriftina. Bara 5 skóladagar og 3 próf eftir. Frekar spes.

Ég er líka að stíga mín fyrstu skref í Gettu betur þjálfun. Það er alveg stórundarlegt að sitja á þessum æfingum og vera ekki að æfa sjálfan sig heldur aðra. Erfitt að stilla sig um að svara spurningum og slíkt. Þetta kemur hins vegar allt, stefnir í alveg ágætis lið hjá okkur. Hef trú á þessum piltum. Verða hins vegar aldrei jafn æðislegir og ég og Víðir. Það væri líka til of mikils mælst að fara fram á slíkt.

Annars er ég að fara til Akureyrar í hádeginu á morgun. Verður gaman. Er að fara að spila með e-u Akureysku bigbandi, í boði tónlistarskólans þar í bæ, sem borgar allt uppihald. Svo að ef þú ert á Akureyri á sunnudaginn kl 18:00, kíktu þá á alveg æðislega tónleika í Ketilhúsinu. Ég veit reyndar ekkert um standardinn á þessu bandi, en hvernig sem því líður mun þetta verða gaman.

Boj.


Bloggin'

Jæja, ég er farinn að blogga aftur. Og að sjálfsögðu er ég að skrifa póstinn sem allir skrifa þegar þeir opna bloggið sitt. En það verður bara að hafa það…


« Fyrri síða

Um bloggið

Carpet my apartment

Höfundur

Jón Ingi Stefánsson
Jón Ingi Stefánsson

Í upphafi var orðið, og orðið var hjá Jóni Inga, og orðið var Gettu betur.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • vlcsnap-3764865.png
  • ...1008862359

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband